08.01.2007 21:59:38 / jv

007

Ég er duglegasti bloggarinn í dag !!
Tók mér bara örlítið jólafrí..
En núna er víst komið nýtt ár einsog margir hafa tekið eftir.
Fyrir þá sem ekki vita : GLEÐILEGT NÝTT ÁR !
Maður lifði jólin Rétt naumlega af,
fullt af fínum gjöfum, böns af konfekti, endalaus matur og fjölskyldu boð.
Fanney og Stefán litu við frá DK.
Gaman að fá þau heim og svona, þau eru sat farin bæði núna..
en ég held að það sé planið að við förum fjölskyldan til þeirra í sumar,.
Sem verður stuð.
Heyrðu já, fyrsti skóladagurinn í dag.
Stundarskrá, nýir kennarar og e-ð..
Alveg ágætlega sáttur með stundarskránna.
Tók eftir þvi að það eru alveg nokkuð margir komir heim aftur,
eftir að hafa farið til útlanda, RVK eða AK.
Ingi elskan t.d. fluttur heim og svona :]
Næstu dagar fara svo í það að, vera í skóla.. Fara á AK,
.. vera meira í skólanum, fara á INCUBUS og allskonar !!
 Ætla svo að reyna að blogga reglulega :]
bara svona ef ég hef e-ð að segja.
Kannski að maður deili með ykkur áformum mínum um að
leggja niður alla kristni á íslandi !!
 það mun gerast á þessu eða næsta ári,

 En þangað til næst, fótbrjóttu þig !

» 15 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 14:06:24 / jv

færsla?

Seinasta vika + helgi :
Fullt af prófum.
Gekk mjög vel í þeim öllum.
Ég er þegar búinn að fá að vita að ég
Náði Stærðfræðinni með 8
Ég náði Íþróttum með 8
Og ég náði dönsku með 5..
Hef komist að því og ákveðið það
Að taka mig virkilega á í dönskunni.
*á innsoginu*: "Þetta gengur ekki lengur" ;]
Seinasta prófið mitt var svo í dag.
Voðalega létt enskupróf.
Þarna inná milli kom svo helgi.
Á Föstudaginn fór ég í Fél. 103 próf.
Gekk vel.
Svo eftir það héngum við e-ð uppávist,
Ég, Fanney, Ragna og Vala.
Svo hringdi JÓN INGI í okkur og sagðist
vera kominn heim til sín í nýja
húsið sitt, og vildi endilega fá okkur í
heimsókn. Við vorum voða spennt,
og fórum strax til hans (þegar ragna
var búin að þjálfa) :]
Eftir smá stund fundum við húsið
í miðjunni, með Jólatrénu fyrir utan.
Þar tók á móti okkur grannur maður,
á hækjum. Hann bar sig nokkuð vel
þrátt fyrir allt sem yfir hann er búið
að ganga seinustu vikur og daga.
Hann var samt mjööög hamingjusamur yfir
því að vera kominn heim til sín.
Og hann er allur að batna.
Eftir heimsóknina fór Vala uppá vist,
En ég Ragna og Fanney, yfir í fellabæ
að horfa á mynd og e-ð og svo bara að sofa =]
Svo á Laugardaginn, fór ég á fimleikasýningu,
svo bauð ég völu út að borða, á búlluna,
Hittum hákon þar, og fórum með honum yfir
á kaffistofuna, hevý nett golf æfingar
dæmi þar við hliðina. Sem við prufuðum
kannski smá..
Svo fórum við Vala bara heim að hanga,
bauð henni að borða með foreldrum mínum,
og svo héldum við yfir í egs
í teiti eitt er haldið var í Ártröð 14.
Mjööög gaman þar, mikið um ölvun,
Allt fór siðsamlega fram, og allt í góðu :]
Takk fyrir gott partý Júlía =] ;*
Svo vaknaði ég eldsnemma á Sunnudaginn,
og fór og hékk hjá Rögnu í söluskálanum,
og fékk svo far með henni heim til Helgu.
Við borðuðum vöfflur og fórum í feluleik þar,
og það varð rafmagnslaust.
Þetta var hin fínasta helgi.
Og ég er voðalega hamingjusamur yfir að vera kominn
í langþráð jólafrí.
Heyrðu, svo fara Fanney og Stefán að fara að koma heim.
Hlakka til að sjá þau aftur =]

Farinn að BAAAKA!!

ps. Inga er ææææðisleeeg!

commenta!


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 21:01:34 / jv

ný færsla

Fínasta helgi að baki.
Byrjaði á skóla á föstudaginn, læra fyrir próf
eftir það. Sumir reyndar ákváðu að drekka sig fulla.
Misgóð hugmynd.
Vaknaði svo eldsnemma á laugardeginum til að fara
í íþróttaprófið. Sumir nett þunnir þar.
Fór svo bara uppá vist að læra eftir það.
Dönskuprófið var svo kl 13. Gekk mjög vel.
Vona að ég fái nú e-ð hátt út úr því !
Svo eftir það, þá kom Bjössi í heimsókn uppá vist.
Alltaf gaman að hitta hann :]
Hann var reyndar of upptekinn að öðru, svo ég og
Brynja fórum að skoða nýju Sentrum búðina sem ÉG STEYPTI.
Mjöög vel steypt hús í alla staði. Og líka fín búð.
Eftir að hafa skoðað búðina kíktum við aðeins á Búlluna.
Þar hitti ég Ibba Hlyns, sem ég er ekki búinn að sjá
frekar lengi. Þá hafði hann verið úti í Dublin á Írlandi
með vinnufélögunum. Maður hefði nú alveg verið til í að vera þar ;]
En svo fórum við á snjósleðasýninguna hjá JG.bílum.
Geggjuð sýning og fullt af flottum sleðum !
Svo sótti mamma mig þangað, og ég bauð Brynju með
heim í mat :]]
fengum kjúkling í matinn og mamma splæsti ís í eftirrétt.
Svo fórum við Brynja uppá vist, til Fanneyjar og Rögnu.
Ég kom þaðan út, með skallablett á báðum kálfunum.
Strákar, það er sárt að láta vaxa sig !!!
Stelpur, ég skil ykkur alveg núna !!!
Þaðan fórum við niðrí Ísmynd að hanga e-ð.
Fullt af fólki þarna, sumir að drekka og e-ð.
Sem sagt, þegar Egilsstaðabúar hafa ekkert að gera, þá drekka þeir
Rúnta, og hanga í Ísmynd. Freeekar súrt partý !
Fór svo eftir lokun í Ísmynd á rúntinn með Árna, Brynju,
Fanneyju og Rögnu, og svo bara heim.
Síðan í morgun vaknaði ég eldsnemma (kl 10) og fór
með Þránni uppí Skriðuklaustur, á Grílugleði.
Þar var svaka skemmtun, krakkar að fá verðlaun fyrir
myndir í myndasamkeppni og annað. Svo voru þeim sagðar
sögur af grílu og leppalúða, sem Ég og Halla vorum
látin leika, og mættu á svæðið, með miklum látum.
Ég held ég hafi aldrei hrætt jafn marga krakka í einu, á ævinni :]
En þetta var nú bara gaman.
Svo Skutluðu Anton og Halla mér heim, og ég fór að læra
í þýskunni minni, og hengja upp seríur :]
ÞAÐ ERU ALVEG AÐ KOMA JÓL !!
Og afmælið mitt !
Veiveivei!
búið..

COMMENTA !


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 20:17:43 / jv

1 des

Þá er maður kominn heim eftir frábært gærkvöld, og góða nótt ! Byrjaði á því að hafa mig til í fínu fötin, og fór svo yfir á vist, að bíða eftir rútunum. Allir voða voða fínir. Fullt fullt af fólki. Svo komu rúturnar. Frekar leiðinleg rútuferð, þarna uppeftir.. allir frekar stilltir bara, engin stemming. Svo komum við uppí Brúarás, þar se tók á móti okkur svona voða fínn fordrykkur. Svo fann e´g ér sæti hjá Inga og Marra og Ríkey og Jónu og Önnu og Þórhalli og Lindu og Benný og Steinunni. Þar beið á borðinu forréttur. Í forrétt var rækju e-ð með kokteilsósu og káli. Voða sérstakt, samt alveg ágætur matur. Sigurveig og Ragna Jara og Teddi voru að syngja fyrir alla á meðan við voru að borða,, ótrúlega flott hjá þeim ! Svo byrjuðu skemmtiatriðin. Í heildina séð BAAARA SNILLD ! Geggjað byrjunaratriði..*mjáw*.......djók...

Fínn matur sem við fengum þarna, og allt voða fínt. Svo voru úrslit úr kostningunum. Þær fóru þannig :

Busi ME : Benni..

Bjartasta Vonin : Egill Gunnarsson (kom á óvart)

Herðatrén : Viktor Andersen og stelpansemégmanekkialveghvaðheitir.

Jóker ME : Jónas Reynir (að sjálfsögðu)

Heldir nemandi : Hákon Unnar Seljan.

Herra ME : Bogi Kárason!!

Ungfrú ME : Sonja e-r, sem mætti ekki!

Svo var bara smá bið eftir eftirmatnum, sem ég sá aldrei.. En eftir hann fór fólk bara að týnast útí rútu og fara heim að skipta um föt og e-ð. Fór smá á rúntinn með Marra og Inga, og fórum síðan í rútuna.´ Hún var svolítið lengi að fara af stað, vegna þess að löggan tók allt í einu uppá því að senda hund, inní rútuna.

Veit ekki af hverju.. En svo lögðum við af stað, og þá var pissustopp eftir 200 metra keyrslu.. nýtt met, að ég held!

Svo var ekkert stoppað fyrr en í Brúarási. Þar fór maður bara beint inn, fann sér e-n félaga og fór að dansa. Allt fullt af fólki þarna, og mitt í öllum látunum þarna, þá fékk ég manneskju í andlitið.. frekar sárt.. fór bara út, kældi það niður og beint inn aftur að dansa. Svo lenti ég líka í því að gifta 2 stelpur. Til hamingju með það ;* ..

Einnig tók Nanna sig til og dansaði fyrir alla uppá bekk. margir tóku sig til og fóru bara að dansa með henni. Ég dansaði voðavoða mikið, við voða voða marga ! Svo hætti hljómsveitin bara að spila og fór. Þá var ballið búið. Rútan stoppaði ekki í Fellabæ, þannig að ég fór bara með Inga og Marra heim til Ingó, og svaf þar. Vaknaði síðan eeeeldhress, og fór i vinnuna.. þar komst ég að því að það sem fólk gerir daginn eftir ball, þegar það vaknar þunnt og myglað... þá fer það á Búlluna.. sumir meira að segja enþá drekkandi, eða byrjaðir að drekka aftur.

Gaman af þessu.. og já... hérna sit ég eftir, sáttur eftir goooottt djamm!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 13:16:03 / jv

snjór?

heyriði, JónIngi elskan er á batavegi,
þrátt fyrir að hafa alveg mölbrotnað,,
og vonandi batnar honum bara sem fyrst..
og Tinnunni hans líka :]

en að allt öðru, það er skemmtanagildi í snjó !!
það sem þarf til, er smá hugmyndaflug, örlítil geðveiki
og þá er ekkert sem stoppar mann.
Í gær og í nótt komst ég að þessu, þar sem stór skafl
hafði myndast fyrir framan trésmiðjuna í fellabæ.
við,gunnar,norski,marri,ogHákon drifum okkur uppá hana
og vorum ekki lengi niður af
henni aftur í heljarstökki niður í skaflinn.
einsog ég segi, það þarf bara smá hugmyndaflug..
annars er helgin búin að vera alveg ágæt,
ekkert afburðar en ágæt þrátt fyrir það.


comments ?
 

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 16:43:40 / jv

ný færsla

Mig langaði bara að óska Jóni Inga góðs bata.
Fyrir þá sem ekki vita þá fylgir þessi frétt :

Á gjörgæsludeild eftir bílslys

Karlmaður var fluttur á gjörgæsludeild Landspítala-Háskólasjúkrahús eftir bílslys, við bæinn Breiðumýri í Reykjadal, á áttunda tímanum í gærkvöldi. Tveir fólksbílar lentu saman og klippa þurfti ökumann annars bílsins út úr bíl sínum en aðra sakaði ekki.

Nokkur hálka var á veginum þegar slysið varð. Sjúkrabíll sótti manninn frá Akureyri og fór með hann að Stórutjörn þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hann. Maðurinn var í aðgerðum í nótt, ekki er talið að hann sé með höfuðskaða og er líðan hans eftir atvikum. Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild er hugsanlegt að hann verði útskrifaður af deildinni í dag eða á morgun.

(tekið af http://visir.is/article/20061118/FRETTIR01/61118009)


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 21:24:29 / jv

banneeer..

Hvernig lýst ykkur á?

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 00:47:06 / jv

fyrsta færsla !

Kæra dagbók.

Jæja, þá hefur ég ákveðið að reyna að halda uppi bloggsíðu,
en og aftur. sjáum til hvernig það tekst.. reyni að vera
duglegur í þessu, en til þess þá þarf fólk að kommenta á
bloggin og vera sýnilegt hérna !

en svo fór ég að velta því fyrir mér hvernig stendur á því,
að með árunum minnkar alltaf skemmtanagildiðí frosnu
vatni sem fýkur um allt og hleðst uppí skafla?
er þetta kannski bara ég?
smá pæling bara..

» 6 hafa sagt sína skoðun